Byrjun
10.900 kr. á mánuði
- Spjall á þínum eigin vef
- Svarar viðskiptavinum á 13 tungumálum
- Lætur þig taka við þegar vaki.chat veit ekki svarið
- Allt að 250 svör til viðskiptavina á mánuði
vaki.chat er móttaka fyrir spjallið á vefnum þínum. Það svarar utan opnunartíma, út frá þínum eigin upplýsingum og á því tungumáli sem viðskiptavinurinn skrifar á.
vaki.chat svarar utan opnunartíma, um helgar og á meðan þú sinnir öðrum.
Íslenska, enska, þýska, franska, kínverska, japanska, pólska, spænska, ítalska, hollenska, danska, rússneska og kóreska. Viðskiptavinurinn skrifar á sínu máli og fær svar á sama máli.
Þegar svarið er ekki í þínum upplýsingum biður vaki.chat um netfang og sendir spurninguna, með öllu samtalinu, til starfsfólksins þíns.
Skrifaðu á þínu eigin tungumáli. Hér svarar vaki.chat fyrir sjálft sig, út frá eigin skrá, alveg eins og það myndi svara fyrir þig út frá þinni.
vaki.chat les nokkrar af síðunum þínum, svarar þremur spurningum um fyrirtækið þitt og rekst svo á eina sem vefurinn þinn svarar ekki. Sjáðu hvað það gerir við hana.
Spurningarnar voru lagðar fyrir hárgreiðslustofu sem var búin til fyrir þessa síðu.
Þjónustan þín, verð, opnunartími, hvar þú ert og skilmálar. Það sem þú svarar hvort eð er daglega.
Með þínum gögnum. Þú ferð yfir allt áður en það fer í loftið.
Á íslensku eða hvaða tungumáli sem er. Þú ræður hvort haldið er áfram.
Fyrstu 14 dagarnir eru ókeypis í öllum áskriftum. Þú skráir kort til að byrja, ekkert er skuldfært fyrr en á 15. degi og ef þú segir upp fyrir þann tíma borgarðu ekkert. Verðin eru endanleg. Greitt mánaðarlega, með millifærslu gegn reikningi eða með korti. Engin binding. vaki.chat les vefinn þinn og fyllir út upplýsingarnar um fyrirtækið þitt, og þú ferð yfir hverja línu áður en það svarar viðskiptavini.
10.900 kr. á mánuði
19.900 kr. á mánuði
Stofnverð fyrir fyrstu fyrirtækin.
34.900 kr. á mánuði
94.000 kr. á mánuði
Þetta eru raunveruleg svör
Fyrirspurn kemur klukkan 23:40. Þú ert að sinna öðrum viðskiptavini, að keyra eða sofandi. Svarið kemur næsta morgun, ef viðskiptavinurinn nennir að bíða. Oftast leitar hann bara annað.
Og spurningarnar eru alltaf þær sömu: hvað kostar þetta, hvenær er opið, hvar get ég lagt bílnum, má ég taka barnið með, hvað ef ég þarf að afpanta?
vaki.chat er móttökuborðið þitt: það svarar viðskiptavinum þínum í spjallinu á vefnum þínum, á þeirra eigin tungumáli, allan sólarhringinn, út frá upplýsingunum sem þú gefur því. Í áskriftinni Stór verður ósvarað símtal að skriflegu svari sem er sent til þín. Þegar svarið er ekki til biður það um netfang og lætur þig vita.
Prófaðu að spyrja vaki.chat hér að ofan.
Þegar vaki.chat hefur ekki svarið lætur það þig vita strax. Starfsmaður opnar eina síðu, sér spurninguna og allt samtalið, og svarar. Svarið fer beint inn í samtalið hjá viðskiptavininum.
Enginn þarf að læra nýtt kerfi. Ein síða, einn lykill, og viðskiptavinurinn fær svarið þar sem hann spurði.
Þjónustan þín, verð, opnunartími, hvar þú ert og skilmálar. Það sem þú svarar hvort eð er daglega.
Með þínum gögnum. Þú ferð yfir allt áður en það fer í loftið.
Á íslensku eða hvaða tungumáli sem er. Þú ræður hvort haldið er áfram.
Fjallateikningarnar á forsíðunni eru unnar eftir ljósmyndum á Wikimedia Commons (CC BY): Esja, Snæfellsjökull og Hekla eftir Axel Kristinsson, Keilir eftir soffias á Flickr og Herðubreið eftir Pietro Valocchi. Kirkjufell er eftir Joe deSousa (CC0).
Íslenska · English · Deutsch · Français · Español · Italiano · Polski · Nederlands · Dansk · Русский · 中文 · 日本語 · 한국어
Þrettán, og viðskiptavinurinn þarf ekki að velja. vaki.chat svarar á því máli sem spurt er á.
Þá lætur það þig vita strax. Starfsmaður opnar eina síðu, les spurninguna og allt samtalið, og svarar. Svarið fer beint til viðskiptavinarins.
Vefsíðuna þína. Það les hana og býr til fyrstu útgáfuna af skránni sinni. Þú lest skrána yfir og lagfærir það sem er rangt.
Samtalið, þangað til þess er ekki lengur þörf. Talhólfsskilaboðum er breytt í texta, og þá eyðir vaki.chat sínu eintaki af upptökunni og biður símafyrirtækið að eyða sínu. Til að breyta tali í texta þarf þjónustu sem tekur við hljóðinu og geymir það; persónuverndarstefnan nefnir hana og segir nákvæmlega hvað er geymt og hversu lengi.
Einn maður, Helgi Þór Jóhannsson. Ef þú sendir fyrirspurn um vaki.chat er það hann sem les hana.
Fjögur föst verð á mánuði: Byrjun 10.900 kr. (allt að 250 svör á mánuði), Smá 19.900 kr., Miðlungs 34.900 kr. og Stór, með síma, 94.000 kr. Smá er stofnverð fyrir fyrstu fyrirtækin. Fyrstu 14 dagarnir eru ókeypis í öllum áskriftum (kort þarf til að byrja og ekkert er skuldfært fyrr en á 15. degi), og verðin eru endanleg. Þú greiðir með millifærslu gegn reikningi, og Byrjun, Smá og Miðlungs má líka greiða með korti. Engin binding.